Um okkur

Á læknastofunni starfa þrír sérfræðingar í fæðingahjálp og kvensjúkdómum; Ósk Ingvarsdóttir, Berglind Steffensen og Kristján Oddsson.

Við störfum í rúmgóðu, björtu og vistlegu húsnæði á efstu hæð ( 3.hæð) að Hlíðasmára 9, 201 Kópavogi, rétt sunnan við Smáralind og Hjartavernd. Lyfta er í húsinu en því miður er ekki salernisaðstaðan með aðgengi fyrir hjólastóla.

Við veitum alla almenna þjónustu innan kvensjúkdómalækninga og bjóðum bæði núverandi og nýja skjólstæðinga velkomna.

Tímabókanir

Við leggjum áherslu á auðveldar tímabókanir og samskipti. Því getur þú nú pantað tíma hvenær sem er á heimasíðunni okkar. Vinsamlegast athugið að aðeins er hægt að bóka tíma á heimasíðunni. Þurfir þú að koma til okkar skilaboðum er það hægt hér.

Afpanta bókaðan tíma

Ef þú getur ekki nýtt tímann af einhverjum ástæðum verðum við þakklát ef þú gætir afbókað með eins miklum fyrirvara og mögulegt er með því að smella á tengil í tölvupóstinum sem fylgdi staðfestingu á tímabókuninni. Því skaltu ekki eyða tölvupóstinum með staðfestingu á tímanum.

Velkomin

Pantaðu tíma hjá kvensjúkdómalækni